
Velkomin á vefsíðu Porn Addicts Anonymous á Íslandi
PAA er 12 spora samtök með það markmið að hjálpa fólki að ná bata frá klámfíkn.
Við erum með nýliðafundi alla laugardaga kl.13:00 í Tjarnargötu 20 (gula.is).
Á fundunum er skipst á reynslusögum og lesið er upp úr lesefni PAA samtakanna.
Fundaskrá
Laugardagar • Kl. 13:00 • Sal A Nýliðadeild (blandað) Tjarnargata 20, 101 rvk
Það þarf ekki að láta vita fyrir fram um komu sína á fundina. Það er tekið vel á móti öllum með heitt á könnunni.
Það er nafnleyndaregla á fundum PAA. Það má ekki berast út fyrir fundina hverjir mæta.
Það er til lausn!
Til þess að ná bata frá klámfíkn er mælst með því að fá sér trúnaðarmann og vinna með honum 12. spor PAA samtakanna.
Trúnaðarmaður er sá/sú sem unnið hefur sporin og er í bata frá klámfíkn. Trúnaðarmenn bjóða sig fram á fundum PAA.
Til þess að gerast PAA félagi þarf aðeins eitt: Löngun til að hætta að horfa á klám.
Inntöku- eða félagsgjöld eru engin, en með innbyrðis samskotum sjáum við okkur efnalega farborð
Hafa samband
paareykjavik@gmail.com
Endilega hafðu samband ef þú hefur einhverjar spurningar
Þú ert ekki einn/ein!
Alþjóðlegu samtökin eru með vefsíðuna
pornaddictsanonymous.org

Mynstur klámfíknar
Þessi mynstur gætu verið gagnleg við að hjálpa þér að meta hvort þú eigir í erfiðleikum með klámfíkn.
Áhorfs- og leitarmynstur
-
Alltaf að leita að meira klámi og skiptir þá engu máli hvað þegar er til staðar.
-
Að eyða peningum í klámneyslu án tillits til þess hvaða áhrif það hefur á fjárhag okkar.
-
Söfnun kláms í ýmsum myndum og skiptir þá engu máli hversu miklu við höfum þegar safnað eða eigum.
-
Endalaus leit að hinu „fullkomna“ efni.
Fíknimynstur
-
Áhorf til þess að flýja tilfinningar.
-
Að eyða meiri og meiri tíma í að leita að klámi án þess að búa yfir getunni til að ákveða hvenær rétt sé að hætta.
-
Að fela klámefni, hvort sem það er á rafrænu eða öðru formi, til þess að tryggja að ekki „komist upp um okkur“.
-
Að hylja rafræna slóð á tækjum okkar. Einangrun frá vinum og fjölskyldu.
-
Að breyta athöfnum okkar eða áætlunum til þess að fóðra virka fíkn okkar.
-
Við vanrækjum skyldur okkar og skuldbindingar, okkar eigin þarfir eða þarfir annarra.
-
Við þurfum klám fyrir eða á meðan við stundum kynlíf með maka eða sjálfsfróun.
-
Við förum á ákveðna staði til þess að horfa á klám til þess að fá fixið okkar.
-
Við hreinsum tölvurnar okkar, önnur tæki og heimili okkar af öllu klámefni eftir hámhorf.
Hegðunarmynstur
-
Vangeta til þess að fara að sofa án þess að horfa á klám.
-
Þörf til þess að horfa á klám áður en við förum að heiman.
-
Áhorf seint á kvöldin svo enginn taki eftir því.
-
Draumórar um nafnlausa kynlífsfélaga.
-
Óviðeigandi kynlífstengt orðfæri og brandarar.
-
Áhugi okkar á kynlífi með maka dofnar.
Réttlætingar og mynstur lágs sjálfsmats
-
Það vill hvort eð er engin/n fara með mér á stefnumót.
-
Engum/engri líkar við mig.
Þetta er öruggara.
-
Hverjum/hverrigetur líkað við mig? Ég er of ___________. Ég er ekki nógu ___________ fyrir neinn.
Afneitunarmynstur
-
„Þetta hefur ekki áhrif á neinn nema mig. Ég er ekki að skaða neinn.“
-
„Núna ræð ég við þetta.“
-
„Þetta er ekki svo slæmt. Ég get hætt þegar ég vil.“
-
„Með klámi þá get ég alltaf fengið það sem ég vil.“
-
„Ég næ í það þegar mig langar.“
-
„Ég get alltaf náð í það.“
-
„Ég á eftir að gera það fyrr eða síðar hvort eð er.“
Höfundarréttur @ 2022 Porn Addicts Anonymous – Allur réttur áskilinn
PAA ráðstefnusamþykkt lesefni – september 2022
Loforð P.A.A.
-
Við munum samþykkja okkur sjálf eins og við erum
-
Við munum samþykkja aðra eins og þau eru.
-
Við verðum alltaf „nóg“ eins og við erum, á meðan við höldum áfram að vinna Tólf reynsluspor og auðga andlegt líf okkar.
-
Viðhorf okkar til heilbrigðra samband við aðra munu þróast og vaxa.
-
Við munum uppgötva sátt í samskiptum við sjálf okkur og aðra.
-
Við munum, eins og það á við, eiga í heilbrigðum, ástríkum og nánum samböndum.
-
Við munum þekkja frelsi, hamingju og æðruleysi.
-
Við munum fylgja flæði lífsins og ekki vera aðskilin frá félögum okkar.
-
Við munum byrja að finna tilfinningar okkar aftur og tilfinningar okkar munu ekki stjórna gjörðum okkar.
-
Við munum uppgötva að æðri máttur hefur verið að framkvæma fyrir okkur það sem við gátum ekki sjálf.
-
Við munum nota innsæi okkar sem er leiðbeint af æðri mætti til þess að takast á við erfiðar aðstæður sem áður rugluðu okkur í ríminu.
Höfundarréttur Porn Addicts Anonymous – Allur réttur áskilinn
Uppfært í júní 2025
Hafa Samband
Netfangið okkar paareykjavik@gmail.com. Endilega hafðu samband við okkur, ef þú hefur spurningar.